17.04.1962
Efri deild: 94. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2540 í B-deild Alþingistíðinda. (2308)

227. mál, lán til þriggja skipasmíðastöðva

Forseti (SÓÓ):

Ég vil út af þessum tilmælum hv. 10. þm. Reykv. geta þess, að það verða fleiri fundir hafðir hér í deildinni í dag, og ég geri ráð fyrir því, að ég geti hagað því þannig, ef þessi till. yrði tekin aftur til 3. umr., svo að n. gæfist kostur á að athuga hana, að taka hana fyrir með afbrigðum á fundi seinna í dag við 3. umr. málsins. Þá verður beðið með að leita afbrigða fyrir þessari skrifl. brtt., svo að n. gefist kostur á að athuga hana nánar.