24.11.1961
Neðri deild: 25. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2724 í B-deild Alþingistíðinda. (2418)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Forseti (RH):
Nú verður gengið til dagskrárinnar og fyrir tekið 3. mál á dagskránni. (LJós: Ég hafði kvatt mér hljóðs, og mér hafði verið svarað. Ég óska eftir —) Hv. þm. hefur talað utan dagskrár, og ég lýsti því áðan, að það yrði að ljúka þessum umr., vegna þess að ég hygg, að hér um bil allir þm. hafi ráðstafað sér nú eftir stutta stund. Það var aðeins ætlunin að reyna að taka hér fyrir eitt dagskrármálið, sem ætla má að taki mjög stuttan tíma að afgreiða. Að öðru leyti var ætlunin að taka dagskrármálin út af dagskránni og slíta síðan fundinum. (LJós: Það hefur verið skorað á mig að svara, og ég óska eftir að fá að tala hér. Ég á sama rétt hér og aðrir til þess að fá að tala hér utan dagskrár.) Um umr. utan dagskrár eru ekki gefnar reglur í þingsköpum, og hygg ég engan veginn rangt, að þessum umr. sé nú slitið.