05.02.1962
Neðri deild: 41. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2727 í B-deild Alþingistíðinda. (2424)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Lúðvík Jósefsson:

Hæstv. forseti. Ég vil aðeins þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Hann hefur svarað því, sem ég spurði hér um, og ég skil það þannig, að ríkisstj. vinni nú að þessum málum og að það megi búast við tillögum hennar í málinu innan skamms og að hún muni leggja tillögur sínar í þessum efnum fyrir Alþingi, og það tel ég skipta höfuðmáli.