06.02.1962
Neðri deild: 42. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2727 í B-deild Alþingistíðinda. (2426)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Hæstv. forseti. Út af fyrirspurn hv. 1. þm. Austf. skal ég segja það, að vissulega er ríkisstj. áhugasöm fyrir því, að hægt verði að lækka vexti, en hún hefur ekki, hvorki við stjórn Landssambands útvegsmanna né aðra, getað sagt um það, hvenær sú lækkun gæti komið til framkvæmda, þótt að henni væri stefnt. Þess vegna var formanni verðlagsráðs sjávarútvegsins sagt, að öruggast mundi vera að reikna í þetta skipti með sömu vöxtum og verið hafa að undanförnu.