04.12.1961
Efri deild: 26. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2733 í B-deild Alþingistíðinda. (2435)

Aldarminning Hannesar Hafsteins

forseti (SÓÓ):

Í dag eru liðin rétt 100 ár frá fæðingu Hannesar Hafsteins ráðherra. Ég ætla ekki í tilefni þessa 100 ára afmælis að rekja æviatriði þessa merka stjórnmálaskörungs okkar Íslendinga og fyrsta innlenda ráðherra okkar, það hefur þegar verið gert á öðrum vettvangi. En mér þykir hlýða að minnast þessa afmælis hér á þessum stað og vil mælast til þess við hv. þdm., að þeir heiðri minningu hans með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]