01.03.1962
Sameinað þing: 39. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2739 í B-deild Alþingistíðinda. (2454)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Svofellt bréf hefur borizt frá forseta neðri deildar:

„Reykjavík, 28. febr. 1962.

Sigurður Ágústsson, 2. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Friðjón Þórðarson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ragnhildur Helgadóttir,

forseti neðri deildar.“

Bréfi þessu fylgir kjörbréf, gefið út af yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis til handa Friðjóni Þórðarsyni. Ég mælist til þess, að kjörbréfanefnd haldi fund um kjörbréfið nú þegar, og verður gert hlé á fundinum á meðan, þar til kjörbréfanefnd hefur lokið athugun sinni á kjörbréfinu. — [Fundarhlé.]