01.03.1962
Sameinað þing: 39. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2739 í B-deild Alþingistíðinda. (2455)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Friðjóns Þórðarsonar sýslumanns, sem er varaþm. Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, en þess hefur verið óskað, að hann tæki sæti Sigurðar Ágústssonar, hv. 2, þm. Vesturl., í forföllum eða fjarveru hans. Kjörbréfanefnd finnur ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til, að það verði tekið gilt og kjör Friðjóns Þórðarsonar sýslumanns samþykkt.