16.12.1961
Efri deild: 36. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2749 í B-deild Alþingistíðinda. (2497)
Þingsetning
forseti (SÓÓ):
Það er gert ráð fyrir, að þetta verði síðasti fundur Ed. Alþ., áður en þinghlé hefst, sem verður að líkindum n.k. þriðjudag. Þm. hverfa nú hver til síns heima, sumir um langan veg. Ég óska öllum góðrar heimferðar, ánægjulegrar heimkomu, ykkur öllum og fjölskyldum ykkar óska ég gleðilegra jóla og farsæls nýs árs, og megum við svo öll hittast heil til starfa að loknu þinghléi.