01.02.1962
Sameinað þing: 32. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2751 í B-deild Alþingistíðinda. (2508)

Þingsetning

forsrh. (Ólatur Thors):

Hinn 18. jan. 1962 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt.“

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh., að Alþingi, 82. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfundar fimmtudaginn 1. febr. 1962, kl. 13.30.

Gert að Bessastöðum, 18. jan. 1962.

Ásgeir Asgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar.“

Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég vil leyfa mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.