17.04.1962
Efri deild: 98. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2752 í B-deild Alþingistíðinda. (2511)

Starfslok deilda

forseti (SÓÓ):

Þá eru ekki fleiri mál á dagskrá þessa fundar. Þetta verður síðasti fundur Ed. á þessu þingi. Ég vil í því tilefni færa ykkur öllum, hv. þdm., þakkir fyrir ánægjulega samvinnu á því þingi, sem nú er að ljúka störfum. Ég þakka ykkur góða fundarsókn og stundvísi. Þá vil ég sérstaklega þakka skrifurum deildarinnar fyrir sérstaka skyldurækni og stundvísi í sinu starfi. Varaforsetum þakka ég mér veitta aðstoð. Skrifstofustjóra Alþingis, fulltrúum hans og starfsfólki Alþingis öllu þakka ég fyrir ánægjulega samvinnu. Ykkur, hv. þdm., sem nú hverfið heim, sumir um langan veg, óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ykkur og fjölskyldum ykkar og öllu starfsfólki þingsins óska ég gleðilegrar páskahátíðar og gleðilegs sumars. Ég vona svo, að við megum öll hittast heil, þegar þing tekur aftur til starfa á komandi hausti.