18.04.1962
Sameinað þing: 58. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2755 í B-deild Alþingistíðinda. (2518)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir ágæta stjórn á fundum sameinaðs Alþingis og góða samvinnu um þinghaldið. Ég veit, að ég tala fyrir munn alls þingheims, þegar ég þakka hæstv. forseta mjög vel fyrir hans hlýju kveðjur til okkar þingmanna og flyt honum árnaðaróskir og hans fjölskyldu. Ég vil einnig óska honum og fjölskyldu hans gleðilegs sumars og vona, að við eigum eftir að sjá hann hér heilan að hausti. Ég vil biðja þingheim að taka undir þessar óskir í garð hæstv. forseta með því að risa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]