07.04.1962
Neðri deild: 86. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (2572)

171. mál, almannavarnir

Eysteinn Jónsson:

Hæstv. forseti. Ég er fylgjandi frv. um almannavarnir með þeim breytingum, sem 4. þm. Reykn., Jón Skaftason, leggur til. Flm. frv., ríkisstj. vill nú sjálf vísa frv. frá með rökstuddri dagskrá, sem er mjög sérkennileg. Ég vil engan þátt eiga í því, hvað hv. flm. og stuðningsmenn þeirra gera við frv. sitt, fyrst þeir vilja ekki láta það ná fram að ganga, og greiði því ekki atkv.