26.03.1962
Neðri deild: 76. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í C-deild Alþingistíðinda. (2599)

25. mál, almannatryggingar

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Ég tel ekki rétt á þessu stigi málsins að slá neinni upphæð fastri og greiði þess vegna atkv. gegn þessari till. Það þarf ekki að þýða, að ég, þegar endanlega kemur til greina að afgreiða málið, verði á móti endilega þessari upphæð, ef hún kemur upp hjá nefndinni, en ég segi nei nú.