15.12.1961
Sameinað þing: 27. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í D-deild Alþingistíðinda. (3003)
120. mál, kjör fulltrúa í Norðurlandaráð
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Á Alþingi 1952–53 var ákveðið að ganga í Norðurlandaráð. Á því sama Alþingi var samþykkt þál., þann 29. jan. 1953, um hversu haga skyldi kosningu fulltrúa og varafulltrúa á Alþingi í Norðurlandaráð, en í reglum þess er svo ákveðið, að af Íslands hálfu skuli kosnir fimm fulltrúar og fimm varafulltrúar. Með þessari þál. var ákveðið, að deildir Alþingis skyldu kjósa þessa fulltrúa, Ed. tvo og Nd. þrjá aðalfulltrúa, og sami háttur hafður á um kjör varafulltrúa. Þessi skipan hefur verið höfð síðan. Nú er hins vegar svo háttað um flestar kosningar á Alþingi, að þær fara fram í sameinuðu þingi, og þykir ríkisstj. rétt að leggja til, að sami háttur verði einnig hafður á nú og hér eftir varðandi kosningu í Norðurlandaráð. Þessi till., sem hér liggur fyrir, er því þess efnis, að Alþingi álykti að kjósa í sameinuðu þingi á hverju reglulegu Alþingi, í fyrsta sinn nú þegar, úr hópi þingmanna fimm fulltrúa og fimm varafulltrúa í Norðurlandaráð. Kosningin gildir til eins árs í senn, eins og verið hefur, eða þangað til kosning hefur farið fram á næsta reglulegu Alþingi. Ég vænti þess, að hv. alþm. geti fallizt á þessa breytingu.