11.04.1962
Sameinað þing: 52. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í D-deild Alþingistíðinda. (3100)

40. mál, verðtrygging lífeyris

Ólafur Björnsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka hv. fjvn. og frsm. hennar fyrir jákvæða afstöðu, sem hún hefur tekið til þessarar till. Mér er ljóst, að tímatakmörk þau, er ákveðin voru í till., þegar hún var lögð fram hér á s.1. hausti, eru óraunhæf, og tel því eðlilegt, að brtt. hv. fjvn. verði samþ.