13.12.1961
Sameinað þing: 22. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (360)

1. mál, fjárlög 1962

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Þessi till. er fram borin af því, að ég er sannfærður um, að það hefði verið hægt að veita meira fé til brúa á Vestfjörðum en gert er, þar sem við fáum aðeins fjárveitingu til tveggja smábrúa. Þess vegna tók ég alls ekki mark á þeim upplýsingum, sem gefnar voru, ég vissi, að þær voru rangar, og þess vegna ber ég tillöguna fram, og ég segi já.