19.12.1961
Sameinað þing: 31. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (390)

1. mál, fjárlög 1962

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Út af því, sem hæstv. ráðh. sagði um formið, vil ég benda á, að það kemur oft fyrir, að slíkar athugasemdir eru látnar fylgja einstökum liðum í fjárlögum. En þar sem hæstv. ráðh. lýsti því yfir, að það mundi tekið að birta þessar skýrslur, eins og ég lagði til í till. minni, þá get ég vel fallizt á það að taka till. mína til baka og geri það.