16.11.1961
Efri deild: 17. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (44)

74. mál, lækkun aðflutningsgjalda

Forseti (EggÞ):

Ég vil aðeins taka það fram í sambandi við þessar óskir hv. þm., að málið hefur verið til umhugsunar þingmanna á fjórða sólarhring, og er það í fullu samræmi við það, sem áður hefur verið gert undir svipuðum kringumstæðum. Tollamál hafa gengið í gegnum báðar deildir þings á þeim sama tíma sem það hefur nú verið hjá þessari einu deild. Ég get ekki orðið og mun ekki verða við þessum óskum hv. þm., því að ég tel, að hér sé um fyllilega lögmæta afgreiðslu að ræða á máli, sem mjög knýjandi er að fá endalok um á annan hvorn veginn, sem meiri hluti þingmanna verður endanlega að ráða um.