13.02.1962
Neðri deild: 48. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (661)
21. mál, lausaskuldir bænda
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Hæstv. forseti. Það er rétt, þetta mál hefur verið nokkrum sinnum hér á dagskrá og ekki tekið til umr., en það hefur sínar eðlilegu orsakir. Umsóknarfrestur var til 1. okt. og bárust 1200–1300 umsóknir, og Búnaðarbankanum var falið að vinna úr þessum umsóknum. Það hefur alltaf verið ætlun ríkisstj. að semja við bankana um það, að þeir tækju bréfin á nafnverði, en samninga var ekki unnt að taka upp við bankana, fyrr en það lá fyrir, hversu há upphæðin var, sem semja skyldi um. Það var ekki fyrr en um miðjan janúarmánuð, sem þetta lá fyrir. Ég get upplýst það, að samningum er nú lokið við bankana, og n.k. fimmtudag er ekkert því til fyrirstöðu að taka málið á dagskrá og til meðferðar hér í hv. Alþingi.
Um það, að það hafi verið bagalegt, að ekki voru veitt lán fyrir áramót, þá er rétt að upplýsa það, að starfsfólk Búnaðarbankans var önnum kafið í nóvember- og desembermánuði við útreikninga á öðrum lánum, eins og hv. þm. ætti að vera kunnugt um. Það var þess vegna enginn tæknilegur möguleiki á því að afgreiða þessi lán fyrir áramót.
Ég hygg, að það sé aðalatriðið, að þetta mál verði leyst farsællega hér í þinginu, eins og alltaf hefur staðið til, og að hitt sé aukaatriði, hvort það er mánuðinum fyrr eða seinna.