12.03.1962
Neðri deild: 65. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (864)

128. mál, Kirkjubyggingarsjóður

Frsm. meiri hl. (Matthías Á Mathiesen):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 360, hefur hv. menntmn. klofnað um þetta frv. Fjórir nm. mæla með því, að frv. verði samþykkt óbreytt, en einn nm., hv. 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, er frv. andvígur. Legg ég því til, að frv. verði samþ. til 3. umr.