10.10.1962
Sameinað þing: 0. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):

Hinn 28. sept. 1962 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi 1962 skuli koma saman til fundar miðvikudag 10. október 1962.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.

Gert að Bessastöðum, 28. september 1962.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett. Ég árna Alþingi allra heilla í störfum, að þau megi verða landi og þjóð til trausts og halds, gæfu og gengis.

Að svo mæltu bið ég alþingismenn að minnast ættjarðarinnar með því að rísa úr sætum.

[ Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Ólafur Thors, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna þingfundi, þar til kosning forseta sameinaðs þings hefur farið fram, og bið ég aldursforseta, Gísla Jónsson, 1. þm. Vestf., að ganga til forsetastóls.

Forseti Íslands tók sér síðan sæti í þingsalnum, en aldursforseti, Gísli Jónsson, 1. þm. Vestf., gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.