03.12.1962
Neðri deild: 24. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)

58. mál, búnaðarmálasjóður

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þegar málið var hér til mr. síðast, óskaði ég eftir því, að þm. yrðu gefnar nokkru nánari upplýsingar um þetta mál en gert er á þskj. 58. Hv. frsm. hefur orðið við þessum tilmælum mínum, og vil ég leyfa mér að þakka honum fyrir hans greinargóðu skýrslu í þessu máli og allar þær upplýsingar, sem hann hefur gefið og að sjálfsögðu gefa okkur tækifæri til þess að átta okkur á málinu betur en ef við hefðum aðeins haft þskj. sjálft til þess að fara eftir. Ég ætla mér ekki að ræða skýrsluna efnislega, en vil endurtaka þakklæti mitt til hv. frsm. fyrir að hafa að þessara upplýsinga, svo að þær verið skjalfestar í þingtíðindum.