20.11.1962
Neðri deild: 17. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1450 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)
90. mál, sjómannalög
Frsm. (Birgir Finnsson):
Hæstv. forseti. Frv. til l. um breyt. á sjómannalögunum var samið að beiðni hæstv. sjútvmrh. af sömu nefnd og samdi frv. um breyt. á siglingalögunum. Það frv. er einnig á dagskrá þessa fundar. Er eðlilegt, að þetta tvennt fylgist að, því að upphaflega voru sjómannalögin sérstakur kafli í siglingalögunum, þ.e.a.s. kaflinn um skipshöfn, en með l. nr. 41 19. maí 1930 var þessi kafli endurskoðaður og gerður að sérstökum lögum, sem nefnast sjómannalög. Við þessa breytingu var fylgt fordæmi hinna Norðurlandaþjóðanna. Sjómannalögunum frá 1930 hefur síðan verið breytt með lögum nr. 36 frá 1941. Lutu þær breytingar, sem þá voru gerðar, aðallega að réttarstöðu loftskeytamanna, og eru breyt. frá 1941 felldar inn í þetta frv.
Sjútvn. flytur frv. á ný að beiðni samgmrn., og áskilja einstakir nefndarmenn sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma. Ég leyfi mér að vísa til grg. með frv. varðandi þau sjónarmið, sem fylgt hefur verið við samningu þess, en þar segir svo m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Með því að ljóst er, að breytingar þær, sem aðrar Norðurlandaþjóðir hafa gert á sjómannalögum sínum, horfa yfirleitt til bóta og eru í betra samræmi við siglingastarfsemi nútíðarinnar en hinar eldri reglur, þá hafa gildandi sjómannalög þeirra verið höfð til fyrirmyndar við samningu frv. þessa. Það er og mikilsvert að rjúfa ekki samræmi það, sem um langt skeið hefur verið milli siglingalöggjafar Íslendinga og annarra Norðurlandaþjóða. Í nokkrum atriðum hefur þó verið vikið frá ákvæðum hinna norrænu sjömannalaga, þar sem annað þótti betur fara vegna íslenzkra atvinnuhátta eða annarra ástæðna.
Með frv. þessu eru ekki gerðar neinar veigamiklar breytingar á réttarstöðu skipshafna. Hér er frekar um að ræða lagfæringar, ýmist til að nema burt úrelt ákvæði og setja önnur viðeigandi í staðinn eða til að fella fyrirmæli laganna betur að reglum almenmar atvinnulöggjafar.“
Óþarft er að bæta miklu við þessa grg. nefndar þeirrar, sem frv. samdi. Sjómannalögin eru talsvert yngri en siglingalögin og þess vegna minni þörf breytinga á þeim. Nýmæli eru það í 4. gr. frv., að skipstjóri skuli ráðfæra sig við bryta og stýrimann, þegar undirmenn þeirra eru ráðnir, hliðstætt þeim ákvæðum, sem nú gilda um það, að skipstjóri skuli ráðgast við yfirvélstjóra um ráðningu annarra vélgæzlumanna.
Tekin eru upp í 5. gr. ákvæði núgildandi barnaverndarlaga um það, að því er pilta snertir, að bannað sé að hafa við vinnu á skipi yngri börn en 15 ára, en gagnvart stúlkum er aldursmarkið hækkað í 18 ár. Er þar farið eftir dönskum og sænskum sjómannalögum, en norsku lögin banna að ráða yngri stúlkur en 20 ára til vinnu á skipi. Nýmæli eru það einnig í sömu gr., að skipverjar skuli ganga undir læknisskoðun, áður en þeir hefja starf sitt á skipi; og verður að telja þetta sjálfsagða heilbrigðisráðstöfun.
Tillögur frv. í 7. gr. um lengingu á uppsagnarfresti skipverja eru til mikilla bóta, en þar er lagt til, að uppsagnarfrestur á skiprúmssamningum stýrimanna, vélstjóra, bryta og loftskeytamanna lengist úr einum mánuði í 3 mánuði, sé eigi annað ákveðið um ráðningartímann. Á öðrum skiprúmssamningum skal uppsagnarfrestur skv. frv, vera 1 mánuður, nema á íslenzkum fiskiskipum 7 dagar. Gilda nú í þessum tilfellum 7 dagar um aðra skipverja, nema á íslenzkum fiskiskipum aðeins einn dagur. Það síðastnefnda hefur einkum reynzt bagalegt, þegar fyrir hefur komið, að skipverjar á fiskibátum hafa notað sér þennan stutta uppsagnarfrest á miðri vertíð og valdið með því tjóni, bæði útgerð og skipsfélögum sínum, þegar ekki hefur tekizt að ráða menn í þeirra stað samstundis, en oft hefur það orðið torvelt vegna hinnar miklu eftirspurnar eftir vinnuafli hin síðari ár. Að mínum dómi kæmi til álita, að þessi frestur til uppsagnar á ráðningarsamningum á fiskiskipum yrði einnig einn mánuður. Það er ekki ósanngjarnt með tilliti til þess, að nú hafa allir skipverjar kauptryggingu, sem jafngildir sæmilegu kaupi hjá fastráðnu fólki. Tillöguna um 7 daga tel ég þó spor í rétta átt.
Í 10. gr. frv. eru ákvæði, sem miða að því að kveða skýrar á um réttindi skipverja til launa í veikindum. Er sá tími, sem þeir njóta slíkra réttinda, yfirleitt lengdur, en getur þó aldrei orðið fleiri dagar en skipverji hefur gegnt störfum á skipi.
Ég tel svo ekki ástæðu til að rekja frekar efni frv., en legg til, hæstv. forseti, að því verði vísað til 2. umr. og að það hljóti afgreiðslu á þessu þingi.