19.03.1963
Neðri deild: 56. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (1569)

92. mál, lántaka vegna vatnsveituframkvæmda í Vestmannaeyjum

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. fjhn. fyrir einróma meðmæli hennar með því frv., sem hér liggur fyrir. Við þær breyt., sem n. hefur gert við frv., hef ég ekkert að athuga. Hin fyrri er samræming við gildandi lög um þetta efni, og hina síðari tel ég eðlilegt ákvæði, þegar að því kemur, ef frv. verður samþ., að umrætt lán verði veitt.

Ég leyfi mér að vænta fljótrar afgreiðslu á þessu máli í þessari hv. deild.