07.03.1963
Neðri deild: 50. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (1590)
182. mál, ábyrgð á láni fyrir Slippstöðina á Akureyri
Flm. (Jónas G. Rafnar):
Herra forseti. Með frv. þessu er lagt til, að Alþingi heimili ríkisstj. að ábyrgjast allt að 5 millj. kr., innlent eða erlend lán fyrir Slippstöðina h/f á Akureyri til endurbóta á skipasmíðastöð sinni og til þess að koma upp skipasmíðastöð fyrir stálskip á Akureyri, gegn tryggingum, sem ríkisstj. tekur gildar.
Á Akureyri hafa verið margir dugandi skipasmiðir og eru enn í dag. Tvö stór fyrirtæki, Skipasmiðastöð Kaupfélags Eyfirðinga og Slippstöðin h/f, annast þar nú skipasmíðar og viðgerðir. Auk þessara aðila fást allmargir við smíðar smærri fiskiskipa. Slippstöðin h/f tók til starfa árið 1952 og leigði þá dráttarbraut bæjarins og kom sér þar upp góðri aðstöðu. Fyrirtækið fékk nýlega samning við bæinn um 15 ára leigu á dráttarbrautinni og hefur nú í hyggju að færa verulega út kvíarnar. Er í ráði að endurbæta húsakostinn og afla betri og nýrri tækja. Forráðamenn fyrirtækisins telja, að þörf sé fyrir skipasmíðastöð norðanlands, sem geti annazt smíði stálskipa, og á Akureyri sé einmitt hentugur staður fyrir slíka starfsemi, þar sem þar eru búsettir margir hæfir járniðnaðarmenn.
Flestir munu vera sammála um, að efla þurfi skipaiðnaðinn í landinu, auk viðgerðanna þurfi nýsmíðin að aukast og sjálfsagt sé að smíða hér stálskip, svo sem aðrar fiskveiðiþjóðir gera í stórum stíl. En allar framkvæmdir á þessu sviði eru fjárfrekar og því einstaklingum og félögum í flestum tilfellum ofviða án þess að fá einhverja fyrirgreiðslu ríkisvaldsins. Alþingi og ríkisstj. hafa sýnt þessum málum skilning, og má síðast minnast þess, að í þinglokin í fyrra var hér á Alþingi samþ. ríkisábyrgðarheimild fyrir þrjár skipasmíðastöðvar við Faxaflóa. Eg vænti þess því, að mál þetta fái góða afgreiðslu hér á hv. Alþingi.
Ég fer svo fram á það, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari umr. og til hv. iðnn.