19.04.1963
Sameinað þing: 51. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir hans upplýsingar og tel þær fullnægjandi við fsp. minni. Fsp. var fram borin vegna þess, að ég taldi eðlilegt, að þar sem komið hafði fram ákveðin gagnrýni og ábending um meðferð á fé, sem veitt var á fjárl. og Alþingi hefur ráðstafað og veitt í ákveðnu skyni, þá kæmu fram hér á Alþingi upplýsingar um það frá því rn., sem þetta mál heyrir undir, þannig að alþm. vissu það rétta og sanna í málinu.