09.11.1962
Sameinað þing: 11. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1971 í B-deild Alþingistíðinda. (1893)
Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman á fund og athugað kjörbréf fyrir Valtý Kristjánsson bónda í Nesi, sem óskað er eftir að taki sæti á Alþingi í forföllum alþm. Ingvars Gíslasonar.
Valtýr Kristjánsson er 3. varaþm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra. Það liggja fyrir símskeyti frá 1. og 2. varaþm. flokksins í kjördæminu, þar sem þeir lýsa yfir, að þeir geti ekki sökum anna og annarra sérstakra ástæðna tekið sæti á Alþingi að þessu sinni.
Kjörbréfanefnd hefur einróma samþykkt að mæla með því, að kosning Valtýs Kristjánssonar verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.