19.11.1962
Efri deild: 18. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1972 í B-deild Alþingistíðinda. (1896)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (SÓÓ):

Mér hefur borizt bréf, sem er svo hljóðandi:

„Reykjavík, 16. nóv. 1962.

Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru sinni.

Ólafur Jóhannesson.“

Kjörbréf Jóns Kjartanssonar hefur áður verið rannsakað og samþ. Hann hefur þegar tekið sæti hér í deildinni, og vil ég bjóða hann velkominn til starfa.