14.02.1963
Sameinað þing: 30. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1974 í B-deild Alþingistíðinda. (1900)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (FS):

Frá forseta Ed. hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 13. febr. 1963.

Magnús Jónsson, 6. þm. Norðurl. e., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda til þess að sitja á þingi Norðurlandaráðs og mun því ekki geta setið á Alþingi næstu 2 vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður minn, Gísli Jónsson menntaskólakennari, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti Ed.

Kjörbréf Gísla Jónssonar hefur áður verið rannsakað og samþ., og tekur hann nú um sinn sæti Magnúsar Jónssonar hér á Alþingi, og býð ég hann velkominn.

Þá hefur borizt annað bréf frá forseta Ed., á þessa leið, það er dags. 13. febr.:

„Ólafur Jóhannesson, 3. þm. Norðurl, v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda til þess að sitja á þingi Norðurlandaráðs og mun því ekki geta setið á Alþingi næstu tvær vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður minn, Jón Kjartansson forstjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Ó. Ólafsson, forseti Ed.

Kjörbréf Jóns Kjartanssonar hefur einnig verið áður rannsakað og samþ., og tekur hann nú sæti Ólafs Jóhannessonar um sinn hér á Alþingi, og býð ég hann velkominn.