18.12.1962
Neðri deild: 32. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1944)

Þingsetning

forseti (JóhH):

Það liggur ekki fleira fyrir þessum fundi, og ef ekki neitt óvænt ber upp á, er þetta sennilega síðasti fundur Nd. fyrir þingfrestunina. Ég vil þess vegna leyfa mér að nota tækifærið til að þakka hv. þdm. fyrir góða samvinnu við mig sem forseta á þessum fyrri hluta þingsins. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að þeir megi njóta jólahátíðarinnar, og einnig ber ég fram þær óskir til starfsfólks þingsins. Ég óska svo þm. öllum gleðilegs nýs árs og þakka gamla árið og læt í ljós þá ósk, að við megum hittast heil á húfi til áframhaldandi samstarfs á næsta ári, þegar þing kemur saman að nýju.