18.12.1962
Neðri deild: 32. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1945)

Þingsetning

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta góðar óskir í okkar garð. Og ég vil óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þakka honum fyrir góða fundarstjórn. Ég vona, að við megum hitta hann heilan á húfi hér á komandi ári. Ég bið hv. þm. að rísa úr sætum til að taka undir þessar óskir mínar til forseta. — [Dm. risu úr sætum.]