09.04.1963
Efri deild: 71. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1985 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)

Þinghlé

forseti (SÓÓ):

Þá eru ekki fleiri mál á dagskrá þessa fundar, og það er líklegt, að ekki verði fleiri fundir í okkar d. fyrir páska. Það getur þó átt sér stað í sambandi við afgreiðslu annarra mála, einkanlega í Nd. Það eru ekki fleiri mál á dagskrá þessa fundar.

Í því tilfelli, að ekki verði fleiri þingfundir fyrir páska, þá er ætlað, að næsti fundur d. verði n.k. þriðjudag, þ.e. þriðjudaginn 14. apríl. Ég vil nota tækifærið og óska öllum hv. þdm. og fjölskyldum þeirra og öllu starfsfólki Alþingis og vandamönnum þess gleðilegrar páskahátíðar. Fundinum er slitið.