19.04.1963
Efri deild: 82. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1990 í B-deild Alþingistíðinda. (1965)

Starfslok deilda

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég veit að ég mæli fyrir hönd allra dm., þegar ég flyt forseta þakkir fyrir árnaðaróskir í okkar garð. Ég vil enn fremur leyfa mér fyrir hönd þdm. að þakka honum fyrir réttláta og röggsama fundarstjórn og gott samstarf við okkur þm. Ég vil leyfa mér að óska honum góðrar heimferðar og heillar heimkomu og honum persónulega og hans fjölskyldu alls velfarnaðar. Og ég vil biðja hv. d. að rísa úr sætum og taka undir þessar óskir mínar til hæstv. forseta. — [Dm. risu úr sætum.]