08.11.1962
Neðri deild: 13. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

46. mál, ríkisreikningurinn 1961

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir 1961 hefur gengið í gegnum hv. Ed. og var samþ. þar athugasemdalaust.

Ég sé ekki ástæðu til að gera grein fyrir þessu máli nú, sérstaklega vegna þess, að það var gert mjög ýtarlega við 1. umr. fjárl. nú nýskeð.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.