15.03.1963
Neðri deild: 54. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (2151)
192. mál, lækningaleyfi
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Þetta litla frv. er flutt að ósk landlæknis, er telur, að óhjákvæmilegt sé að breyta dagsektarheimildinni, sem er í l. frá 1932, til samræmis við það verðlag, sem nú er og allir vita að er gerólíkt því, sem var fyrir meira en 30 árum. Hann telur, að þessi breyting sé nauðsynleg til þess að greiða fyrir, að skýrslur fáist, sem á þurfi að halda, og vonast ég til þess, að málið gangi ágreiningslaust sína leið. Legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.