07.03.1963
Neðri deild: 50. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (2272)

31. mál, Siglufjarðarvegur ytri

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Snemma á þessu þingi bárum við þrír þm. í hv. d. fram frv. til l. um lántöku vegna Siglufjarðarvegar ytri, Strákavegar. Frv. þessu var útbýtt 18. okt., og það er á þskj. 31. Skömmu síðar var það tekið til 1. umr. og vísað til hv. samgmn. Við flm. erum þegar orðnir langeygðir eftir áliti frá hv. n. og vildum mjög mælast til þess, að hún léti ekki lengur dragast að skila áliti. Ég vil jafnframt leyfa mér að beina því til hæstv. forseta, að hann ýti á eftir n., ef þörf gerist, að álitið komi hið fyrsta og málið geti fengið þinglega afgreiðslu.