01.11.1962
Neðri deild: 10. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (244)

63. mál, skemmtanaskattsviðauki 1963

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í þessu frv. felst það eitt, að heimilt skuli á næsta ári að innheimta skemmtanaskatt með sama álagi og gert hefur verið nú um langt árabil. Sú venja hefur skapazt, að Alþingi samþ. lög um þetta efni til eins árs í senn, og gerir frv. ráð fyrir, að sú venja haldist. Ég legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn.