06.04.1963
Sameinað þing: 46. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í D-deild Alþingistíðinda. (2718)

138. mál, lausn ítaka af jörðum

Fram. (Jónas G. Rafnar):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til meðferðar till. á þskj. 246 um athugun á framkvæmd laga nr. 113 1952, um lausn ítaka af jörðum, og orðið sammála um að mæla með því, að till. verði samþykkt óbreytt.