19.04.1963
Sameinað þing: 51. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (2759)

112. mál, fiskvegur um Brúafossa í Laxá

Frsm. (Kjartan J. Jóhannsson):

Herra forseti. N. hefur rætt þessa till. og fékk um hana umsögn veiðimálastjóra, sem telur, að gerð fiskvegar um Brúafossa í Laxá muni vera mjög mikil framkvæmd, kosta milljónir kr., en bendir í leiðinni á, að það sé hugsanlegt, að leysa megi þetta vandamál á annan og ódýrari hátt, en telur, að áður en fullyrt verði um það, hver lausn verði heppilegust á þessu, sé nauðsynlegt, að slík rannsókn fari fram sem farið er fram á í þessari þáltill., og n. mælir með því, að það verði gert.