27.02.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í D-deild Alþingistíðinda. (2815)
42. mál, hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Allshn. hefur rætt þetta mál allýtarlega og er sammála um, að æskilegt sé, að athugun verði látin fara fram á því, hvort hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag henti íslenzku athafnalífi. Er það skoðun n., að eðlilegt sé, að mþn. sú, sem nú vinnur að athugun á lengd vinnutíma og fleiri atriðum og úrræðum til þess að bæta sambúð vinnuveitenda og launþega, taki þetta mál einnig til meðferðar. Það er því till. allshn., að till. verði vísað til ríkisstj. í trausti þess, að hún beini því til fyrrgreindrar nefndar að taka efni hennar til athugunar.
Allshn. fékk umsögn um till. frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, Alþýðusambandi Íslands, Iðnaðarmálastofnuninni og Fétagi ísl. iðnrekenda. Enda þótt skoðanir þessara aðila séu nokkuð skiptar um till., sumir mæltu með henni og aðrir töldu hana ekki tímabæra, kom þó sú skoðun fram hjá öllum þessum aðílum, að nauðsynlegt sé að freista nýrra leiða til þess að sætta vinnu og fjármagn og koma í veg fyrir árekstra á vinnumarkaðinum.
Af hálfu okkar flm. till. leyfi ég mér aðeins að láta þá ósk og von í ljós, að sú mþn., sem fær till. til athugunar, kynni sér þau sjónarmið sem bezt, er fram koma í henni, og rökstuðning þann, sem till. fylgir.
Það er að sjálfsögðu skoðun okkar, að margar fleiri leiðir en hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri megi fara til þess að draga úr þeirri tortryggni, sem ríkt hefur og ríkir enn milli verkalýðs og vinnuveitenda í þessu landi. í því sambandi má t.d. nefna aukna ákvæðisvinnu, stofnun almenningshlutafélaga, samstarfsnefndir launþega og atvinnurekenda, ýmiss konar vinnuhagræðingu og sameiginlega hagstofnun launþega og vinnuveitenda, sem fylgist með greiðslugetu atvinnuveganna og tryggi réttmæta hlutdeild launþega í aukinni framleiðslu. Kjarni málsins er að okkar áliti sá, að ekki megi láta þess ófreistað að leggja út á nýjar leiðir til þess að bæta sambúð verkalýðs og vinnuveitenda og koma í veg fyrir þá óheillavænlegu árekstra, sem sífellt eru að verða milli þessara aðila og kosta þjóðfélagið gífurlegt fjármagn og baka því stórkostlegt tjón. í nútímaþjóðfélagi megum við ekki einblína til liðins tíma, úrræða hans og aðferða. Við megum ekki hika við að fara nýjar leiðir, sem betur kunna að henta og samhæfast breyttum viðhorfum og nýjum tíma.
N. mælir með því, að till. verði vísað til hæstv. ríkisstjórnar.