12.12.1962
Sameinað þing: 20. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (289)

1. mál, fjárlög 1963

Forseti (FS):

Allmörg undanfarin ár hefur sá háttur verið hafður um afgreiðslu fjárlaga, að hin almenna umr., eldhúsdagsumr., sem samkv. þingsköpum á að fara fram við framhald 1. umr., hefur farið fram síðar á þinginu. Ég mun nú bera það undir atkv. hv. þm., hvort sami háttur skuli enn hafður.