14.12.1962
Sameinað þing: 22. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

1. mál, fjárlög 1963

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég tel, að hér sér hreyft mjög merku máli, sem nauðsynlegt sé að leysa og það sem allra fyrst, en hins vegar sé málið ekki nægilega undirbúið til þess að taka inn 1 millj, kr. á fjárlög fyrirvaralaust, en í trausti þess, að dómsmrn. láti athuga þessi mái í framtíðinni og finni leiðir til þess að leysa þau, segi ég í þetta skipti nei.