09.04.1963
Efri deild: 70. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (626)

172. mál, byggingasjóður aldraðs fólks

Frsm. (Kjartan J. Jóhannsson):

Herra forseti. Hæstv. félmrh. hefur gert grein fyrir þeim breyt., sem gerðar voru á frv. í Nd. Um þær breytingar var haft samráð við heilbr. og félmn. þessarar hv. d., og við getum alveg fallizt á þær breytingar, sem gerðar hafa verið, og mælt með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir.