02.04.1963
Efri deild: 66. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (660)

212. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Varðandi þá fsp., sem borin var hér fram af hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB), þá hefur þetta mál ekki borið á góma í n. og hún hefur ekki fengið um það neinar upplýsingar. Hins vegar er ég reiðubúinn til þess að útvega þessar upplýsingar fyrir 3. umr., ef hv. þm. telur það viðunandi, en hæstv. viðskmrh. er ekki viðstaddur hér í d. núna, þannig að hann getur ekki svarað fsp., en vera má, að honum sé um þetta kunnugt.