26.03.1963
Neðri deild: 60. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (690)

5. mál, lögreglumenn

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Hæstv. forseti. Ég hafði ekki æskt þess, að þessari umr, yrði frestað. Þvert á móti tel ég ekki ástæðu til, að n. komi saman til fundar út af þessum brtt.

Ég hafði þegar gert grein fyrir því, a.m.k. frá mínu sjónarmiði, að ég teldi þær vera óþarfar, og ég ber ekki fram neina ósk um það, að umr. verði frestað þeirra vegna.