10.10.1962
Sameinað þing: 0. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (7)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (Gísli Jónsson):

Þá hafa kjördeildir skilað áliti um öll kjörbréfin og er enginn ágreiningur. Ég mun því bera upp til atkvæða kjörbréf hinna nýju þingmanna í einu, ef enginn mælir því í gegn, þar sem enginn ágreiningur er um kjörbréfin.