09.04.1963
Efri deild: 70. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (838)

219. mál, framboð og kjör forseta Íslands

Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Frv. þetta til l. um breyt. á l. nr. 36 12. febr. 1948, um framboð og kjör forseta Íslands, fjallar um kjörskrár við forsetakosningar. Í stuttri grg., sem fylgir frv., er gerð fullnægjandi grein fyrir efni þess, og auk þess skýrði hæstv. forsrh. frá höfuðatriðum þess, er hann mælti fyrir því við 1. umr. Þarf ég þar engu við að bæta. Allshn. þessarar hv. d. leggur einróma til, að frv, verði samþ., eins og nál. á þskj. 581 ber með sér.