14.03.1963
Neðri deild: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (851)

177. mál, aðstoð við kaupstaði og kauptún vegna landakaupa

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hv. frsm. n. sagði áðan. Hann hefur ekki athugað l. frá 1941 til hlítar, að því er mér virðist, en ef hann gerir það, sem hann mun sjálfsagt gera, þá mun hann komast að raun um, að þar er ákvæði, sem heimilar ríkisstj. að selja þau lönd, sem þar er um að ræða. Þessi heimild hefur verið nokkuð notuð og á þann hátt, sem ég gat um áðan í ræðu minni.