09.04.1963
Efri deild: 71. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (950)

54. mál, lyfsölulög

Forseti (SÓÓ):

Vegna þess, sem fram hefur komið frá hv. 1. þm. Norðurl. e. um það að fresta nú þessu máli enn vegna fjarveru hv. 9. þm. Reykv., þá vil ég geta þess, að í samtali við hann í dag var ég búinn að tjá honum, að það mundi ekki verða hægt að fresta málinu. Og þar sem form. n. fyrir hönd meiri hl. óskar ekki eftir því, að málinu verði frestað, sé ég mér ekki annað fært en láta nú fara fram atkvgr. um brtt. og málið nái því að ná fram núna hér við þessa 3. umr.