10.10.1963
Sameinað þing: 0. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (1)
Forseti Íslands setur þingið
Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):
Hinn 16. sept. 1963 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Ég hef ákveðið samkvæmt till. forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1963.
Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.
Gert að Bessastöðum, 16. sept. 1963.
Ásgeir Ásgeirsson.
Ólafur Thors.
Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1963.“
Samkv. bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.
Ég býð alla nýkjörna hv. alþm. og hæstv. ríkisstj. velkomna, og ég árna Alþingi allra heilla í störfum, að þau megi verða landi og þjóð til trausts og halds, gæfu og gengis.
Að svo mæltu bið ég alþm. að minnast fósturjarðarinnar með því að rísa úr sætum. [Þingmenn risu úr sætum, og forsrh., Ólafur Thors, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]
Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna þingfundi, þar til kosning forseta sameinaðs þings hefur farið fram, og ég bið aldursforseta, Ólaf Thors forsætisráðherra, að ganga til forsetastóls.
Aldursforseti gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.